Menu

Þríþrautarnámskeið fyrir ungmenni

Vikuna 19. –24. ágúst býður Þríkó upp á þríþrautanámskeið fyrir krakka á aldrinum 12-16 ára.

Námskeiðið mun fara fram á Vallarsvæði Breiðabliks á milli 8.30 og 12:30. Farið verður yfir allt sem viðkemur þríþraut, hjólafærni, sundtækni, hlaupatækni, skiptingar, næringu og margt fleira.

Námskeiðið er fyrir alla sem vilja kynna sér þessa spennandi íþrótt, skemmta sér og bæta úthald í leiðinni. Kostnaður er 10.000 og er innifalinn aðgangur að sundlaug. Hafa þarf meðferðis hjól, hjálm, sundföt og hlaupadót. Takmarkaður fjöldi.

Skráning og nánari upplýsingar í tölvupósti This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og hjá Einari síma 6629964

back to top