Menu

Ný stjórn Þríkó kjörin á aðalfundi

Aðalfundur Þríkó var haldinn fimmtudaginn 31. janúar. Ný stjórn var kjörin og hana skipa Einar Stefán Kristinsson formaður, Bertel Ingi Arnfinnsson, Þórdís Hrönn Pálsdóttir, Halldóra Gyða Matthíasdóttir Proppé og Viðar Bragi Þorsteinsson. Sigurður Haraldsson gaf ekki kost á sér til áframhaldandi starfa. Sigurður hefur verið formaður Þríkó frá stofnun og leitt uppbygginguna innan félagsins en það hefur vaxið hratt og telur nú rúmlega 70 félaga. Sigurði eru færðar bestu þakkir fyrir hans stóra framlag frá Þríkó.

back to top