Menu

Aðalfundur 2026

Aðalfundur Þríþrautardeildar Breiðabliks fer fram miðvikudaginn 8. apríl kl. 17:30. 

Fundurinn verður haldinn í veislusalnum á annarri hæð í Smáranum. 

Framkvæmd og dagskrá fundarins er skv. lögum Breiðabliks og er svo hljóðandi: 

  • Kosning fundarstjóra og ritara.
  • Formaður leggur fram skýrslu deildar.
  • Ársreikningur lagður fram til samþykktar.
  • Kosning formanns.
  • Kosning stjórnarmanna.
  • Umræða um málefni deildar og önnur mál.

Kjörgengi til stjórnar hafa skráðir félagar, 18 ára og eldri,  sem greitt hafa félagsgjald og/eða æfingagjöld til Þríþrautadeildar áður en auglýstum framboðsfresti lýkur sem er viku fyrir aðalfund.

Skráning og greiðsla félagsgjalda þarf að vera lokið að minnsta kosti 48 klst. fyrir aðalfund til þess að öðlast atkvæðarétt á aðalfundinum. Skráning fer fram hér.

Skriflegu framboði til formanns eða stjórnar skal skila til Tönju Tómasdóttur framkvæmdastjóra félagsins á netfangið This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it., að lágmarki viku fyrir boðaðan aðalfund eða í síðasta lagi kl. 17:30  miðvikudaginn 1.apríl 2026.

Að öðru leyti vísast í lög félagsins sem finna má á heimasíðu Breiðabliks, breidablik.is.

back to top