FIRMAKEPPNI ÍSLANDS Í ÞRÍÞRAUT 2016
- font size decrease font size increase font size
Firmakeppni Íslands í þríþraut verður haldin í Sundlaug Kópavogs Borgarholtsbraut þann 4. september kl 10:00
Keppt er í sprettþraut þ.e. 400m sund, 10,4 km hjól og 3,6 km hlaupi.
Hvert fyrirtæki fær tvær tímatökuflögur sem þarf að skila í mark og nota til þess 2 til 6 þátttakendur sem skipta á milli sín 3 hlutum keppninnar, sundi, hjóli og hlaupi og færa tímatökuflöguna á milli liðsmanna inni á skiptisvæði.
Einn keppandi má einnig klára alla þrautina.
Þátttökugjald fyrir hvert lið (2-6 þátttakendur) er 30.000 kr.
Fyrirtæki má kaupa fleiri en eitt lið inn í keppnina. Hvert lið tilnefnir fyrirliða við skráningu sem er ábyrgur fyrir samskiptum við mótstjórn. Það fyrirtæki sem hefur samanlagða 2 stystu keppnistímana vinnur Firmakeppni Íslands í þríþraut. Verðlaun fyrir sigur er farandbikar og eignarbikar.
Reglur fyrir Firmakeppni Íslands:
- Fyrirtæki getur sent allt að 6 manns í hverju liði.
- Ekki er leyfilegt að skipta um liðsmann innan sunds, hjóls eða hlaups, einungis á milli greina.
- Fyrirtækið þarf að skila tveimur heildartímum. Þ.e. fyrir heila þríþraut.
Skráningu lýkur á miðnætti fimmtudaginn 1. sept.
Smelltu hér til að skrá þig og þitt fyrirtæki
Brautarlýsing: Hjóla og hlaupaleiðir