Menu

Firmakeppni Íslands í þríþraut 2015

Firmakeppni Íslands í þríþraut verður haldin í Sundlaug Kópavogs Borgarholtsbraut þann 6. september kl 10. 

Keppt er í sprettþraut þ.e. 400m sund, 10,4 km hjól og 3,6 km hlaupi. 

Hvert fyrirtæki fær tvær tímatökuflögur sem þarf að skila í mark og nota til þess 2 til 6 þátttakendur sem skipta á milli sín 3 hlutum keppninnar, sundi, hjóli og hlaupi og færa tímatökuflöguna á milli liðsmanna inni á skiptisvæði.

Einn keppandi má einnig klára alla þrautina.

Þátttökugjald fyrir hvert lið (2-6 þátttakendur) er 30.000. 

Fyrirtæki má kaupa fleiri en eitt lið inn í keppnina. Hvert lið tilnefnir fyrirliða við skráningu sem er ábyrgur fyrir samskiptum við mótstjórn.  Það fyrirtæki sem hefur samanlagða 2 stystu keppnistímana vinnur Firmakeppni Íslands í þríþraut. Verðlaun fyrir sigur er farandbikar og eignarbikar.

Reglur fyrir Firmakeppni Íslands:

Allir keppendur fyrirtækis verða að vera á launaskrá fyrirtækis.

Fyrirtæki getur sent allt að 6 manns í hverju liði.

Ekki er leyfilegt að skipta um liðsmann innan sunds, hjóls eða hlaups, einungis á milli greina.

Fyrirtækið þarf að skila tveimur heildartímum. Þ.e. fyrir heila þríþraut.

 

Skráning er hér : https://docs.google.com/forms/d/1Yb_EXdVffMVLdWYhBW5zVLejPSXIXv-1kq3QfRyQqy8/viewform

 

Brautarlýsing: Hjóla og hlaupaleiðir
http://www.breidablik.is/assets/ymislegt/Firmakeppni2012.jpg

 

 

Lið Advania sigraði í fyrra

back to top