Menu
A+ A A-

Kópavogsþríþraut Þríkó 2018

Kópavogsþríþrautin verður haldin þann 13. maí nk.

Vegalengdir eru 400 m sund, 10,3 km hjól og 3,5 km hlaup.

Keppt er eftir reglum þríþrautarnefndar, sjá hér:

Synt er í Sundlaug Kópavogs, skiptisvæði er á Rútstúni fyrir neðan sundlaugina.

Ræst verður í tveimur riðlum.
Fyrri riðill (Byrjendaflokkur)
Seinni riðill (Almennur flokkur)

Hvor riðill getur verið allt að 60 manns sem munu synda í einu á öllum 10 brautum stóru laugarinnar, og hlaupa svo niður á skiptisvæðið á Rútstúni. Þá tekur hjólið við, þar sem hjólaðir eru 3 hringir út fyrir Kársnes og framhjá sundlauginni sem endar aftur á skiptisvæði á Rútstúni, þar sem skipt er yfir á hlaupaskó og hlaupnir 2 hringir inn Kópavogsbraut út fyrir Sunnuhlíð niður að Kópavoginum og til baka. Hér má sjá kort af leiðinni.

Dagskrá

kl: 08:00 Afhending keppnisgagna
kl: 08:30 Tæknifundur með yfirdómara á Rútstúni
kl :09.00 Fyrri riðill  
kl: 09.30 Seinni riðill
kl: 11.30 Fjölskylduþraut - Skráningu lokið
kl: 12.45 Verðlaunaafhending

Verðlaun verða veitt fyrir fyrstu þrjá keppendur í hverjum flokki.
Unglingar 16 – 19
20 – 29 ára
30 – 49 ára
50 – 59 ára
60+

Þátttökuverðlaun verða veitt fyrir 5-15 ára
5-15 ára er hluti af fjölskylduþrautinni.

Skráningargjald er 3.900 kr.
Skráningargjald í fjölskylduþrautina er 2.000 kr.

ATHUGIÐ! Greiða þarf skráningargjald inn á bankareikning til að skráning sé tekin gild.

Banki: 322-26-001421 Kt: 601217-2280

Skráningu lýkur á miðvikudegi 9. maí

Nánari upplýsingar / More information

Dagsetning / Date 13-05-2018 08:30
Viðburði lýkur / End Time 13-05-2018 12:30
Hámarksfjöldi 120
Skráðir 102
Skráning lokar / Registration ends 09-05-2018
Verð / Price Ókeypis eða ekki tekið fram
Staðsetning Sundlaug Kópavogs
Skráning ekki hafin eða ekki er lengur tekið við skráningu í þetta mót.