Menu
A+ A A-

Kópavogsþríþraut Þríkó

Kópavogsþríþrautin verður haldin þann 10. maí nk.

Vegalengdir eru 400 m sund, 10,3 km hjól og 3,5 km hlaup.

Keppt er eftir reglum þríþrautarnefndar, sjá: http://www.triathlon.is/?page_id=1211

 Synt er í Sundlaug Kópavogs, skiptisvæði er á Rútstúni fyrir neðan sundlaugina.

Ræst verður í þremur riðlum.

1. riðillinn er sérstaklega tileinkaður byrjendum. Hver riðill getur verið allt að 60 manns sem munu synda í einu á öllum 10 brautum stóru laugarinnar, og hlaupa svo niður á skiptisvæðið á Rútstúni. Þá tekur hjólið við, þar sem hjólaðir eru 3 hringir út fyrir Kársnes og framhjá sundlauginni sem endar aftur á skiptisvæði á Rútstúni, þar sem skipt er yfir á hlaupaskó og hlaupnir 2 hringir inn Kópavogsbraut út fyrir Sunnuhlíð niður að Kópavoginum og til baka. Hér má sjá kort af leiðinni.

Dagskrá

8:00 Tæknifundur með yfirdómara á Rútstúni

kl. 8.30 B flokkur (Byrjendur og þeir sem eiga ekki tíma undir 60 mínútum)

kl 9.15 A flokkur 

kl. 9.40 A flokkur seinna holl 

kl. 10.30 Hjólaþrautasýning í hléi

kl. 11.00 Fjölskyldu og unglingaþraut 12-13 ára og 14-15 ára flokkar

kl. 12.15 Verðlaunaafhending

kl. 9.30 - 11.00 Barnaþraut verður í gangi

Flokkar, karla og kvennaflokkar 16-39 ára, 40-49 ára og 50+

Hér er skráning í fjölskylduþrautina: https://docs.google.com/forms/d/1t2NAODuPQMid6PlwQPu64yLZ6vamE89cO5t74Fx2CfY/viewform

Og skráning í barnaþraut

Nánari upplýsingar / More information

Dagsetning / Date 10-05-2015 08:30
Viðburði lýkur / End Time 10-05-2015 12:30
Hámarksfjöldi 140
Skráðir 90
Skráning lokar / Registration ends 07-05-2015
Verð / Price 2.500 kr.
Staðsetning Sundlaug Kópavogs
Skráning ekki hafin eða ekki er lengur tekið við skráningu í þetta mót.