Hlaupið er haldið á Gamlársdag og er ræst stundvíslega klukkan 12:00.
Staðsetning
Rásmarkið er á Sæbrautinni fyrir utan Hörpuna.
Skráning
Forskráning á hlaup.is til miðnættis 30. desember og eru þátttakendur hvattir til nýta sér það.
Hægt verður að skrá sig á hlaupdag í Hörpunni frá kl. 10:00 þar til 15 mínútum fyrir hlaup, keppendur eru vinsamlegast beðnir um að virða það. Athugið að skráningargjald hækkar fyrir þá sem skrá sig á hlaupdag og eru þátttakendur því hvattir til að forskrá sig.
Þeir sem forskrá sig fyrir kl. 16:00 mánudaginn 30. desember geta sótt gögnin sín í Hörpuna milli kl. 18 og 19:30 mánudaginn 30. des. Annars verða gögn afhent í Hörpunni þriðjudaginn 31. desember milli kl. 10 og 11:45
Þátttökugjöld
Forskráðir:
1.800 kr fyrir 16 ára og eldri (f. 1997 og fyrr). Enginn verðlaunapeningur.
2.300 kr fyrir 16 ára og eldri (f. 1997 og fyrr). Verðlaunapeningur innifalinn.
1.000 kr fyrir 15 ára og yngri (f. 1998 og síðar). Verðlaunapeningur innifalinn.
Skráning á keppnisstað:
2.300 kr fyrir 16 ára og eldri
1.300 kr fyrir 15 ára og yngri
Vegalengd
10 km
Hlaupaleið
Rásmark er á Sæbrautinni fyrir framan Hörpuna. Hlaupið er austur Sæbraut, niður Sægarða (við Holtagarða), norður Vatnagarða og áfram upp Klettagarða inn á Sæbraut aftur. Endamarkið er á planinu fyrir framan Hörpuna.
| Dagsetning / Date | 31-12-2013 12:00 |
| Viðburði lýkur / End Time | 31-12-2013 00:00 |
| Hámarksfjöldi | Ótakmarkað eða ekki tekið fram |
| Verð / Price | Ókeypis eða ekki tekið fram |
| Staðsetning | Harpa |