Menu
A+ A A-

Gamlárshlaup ÍR (Ekki til að skrá sig)

Hlaupið er haldið á Gamlársdag og er ræst stundvíslega klukkan 12:00.

Staðsetning

Rásmarkið er á Sæbrautinni fyrir utan Hörpuna.

Skráning

Forskráning á hlaup.is til miðnættis 30. desember og eru þátttakendur hvattir til nýta sér það.

Hægt verður að skrá sig á hlaupdag í Hörpunni frá kl. 10:00 þar til 15 mínútum fyrir hlaup, keppendur eru vinsamlegast beðnir um að virða það. Athugið að skráningargjald hækkar fyrir þá sem skrá sig á hlaupdag og eru þátttakendur því hvattir til að forskrá sig.

Þeir sem forskrá sig fyrir kl. 16:00 mánudaginn 30. desember geta sótt gögnin sín í Hörpuna milli kl. 18 og 19:30 mánudaginn 30. des. Annars verða gögn afhent í Hörpunni þriðjudaginn 31. desember milli kl. 10 og 11:45

Þátttökugjöld

Forskráðir: 

1.800 kr fyrir 16 ára og eldri (f. 1997 og fyrr). Enginn verðlaunapeningur.

2.300 kr fyrir 16 ára og eldri (f. 1997 og fyrr). Verðlaunapeningur innifalinn.

1.000 kr fyrir 15 ára og yngri (f. 1998 og síðar). Verðlaunapeningur innifalinn.

Skráning á keppnisstað: 

2.300 kr fyrir 16 ára og eldri

1.300 kr fyrir 15 ára og yngri

Vegalengd

10 km

Hlaupaleið

Rásmark er á Sæbrautinni fyrir framan Hörpuna. Hlaupið er austur Sæbraut, niður Sægarða (við Holtagarða), norður Vatnagarða og áfram upp Klettagarða inn á Sæbraut aftur. Endamarkið er á planinu fyrir framan Hörpuna.

Nánari upplýsingar / More information

Dagsetning / Date 31-12-2013 12:00
Viðburði lýkur / End Time 31-12-2013 00:00
Hámarksfjöldi Ótakmarkað eða ekki tekið fram
Verð / Price Ókeypis eða ekki tekið fram
Staðsetning Harpa