Menu
A+ A A-

Kópavogsþríþraut Þríkó 2017

Kópavogsþríþrautin verður haldin þann 14. maí nk.

Vegalengdir eru 400 m sund, 10,3 km hjól og 3,5 km hlaup.

Keppt er eftir reglum þríþrautarnefndar, sjá hér:

Synt er í Sundlaug Kópavogs, skiptisvæði er á Rútstúni fyrir neðan sundlaugina.

Ræst verður í tveimur riðlum.
Fyrri riðill (Byrjendaflokkur)
Seinni riðill (Almennur flokkur)

Hvor riðill getur verið allt að 60 manns sem munu synda í einu á öllum 10 brautum stóru laugarinnar, og hlaupa svo niður á skiptisvæðið á Rútstúni. Þá tekur hjólið við, þar sem hjólaðir eru 3 hringir út fyrir Kársnes og framhjá sundlauginni sem endar aftur á skiptisvæði á Rútstúni, þar sem skipt er yfir á hlaupaskó og hlaupnir 2 hringir inn Kópavogsbraut út fyrir Sunnuhlíð niður að Kópavoginum og til baka. Hér má sjá kort af leiðinni.

Dagskrá

kl: 08:00 Afhending keppnisgagna
kl: 08:30 Tæknifundur með yfirdómara á Rútstúni
kl :09.00 Fyrri riðill  
kl: 09.30 Seinni riðill
kl: 11.30 Fjölskylduþraut - Skráning fer fram hér
kl: 12.45 Verðlaunaafhending
Flokkar, karla og kvennaflokkar 16-39 ára, 40-49 ára og 50+

 

Nánari upplýsingar / More information

Dagsetning / Date 14-05-2017 08:30
Viðburði lýkur / End Time 14-05-2017 12:30
Hámarksfjöldi 120
Skráðir 120
Skráning lokar / Registration ends 12-05-2017
Verð / Price 3.000 kr.
Staðsetning Sundlaug Kópavogs
Skráning ekki hafin eða ekki er lengur tekið við skráningu í þetta mót.