Firmakeppni Íslands í þríþraut verður haldin í Sundlaug Kópavogs Borgarholtsbraut þann 2. september kl 10:00
Keppt er í sprettþraut þ.e. 400m sund, 10,4 km hjól og 3,6 km hlaupi.
Hvert fyrirtæki fær tvær tímatökuflögur sem þarf að skila í mark og nota til þess 2 til 6 þátttakendur sem skipta á milli sín 3 hlutum keppninnar, sundi, hjóli og hlaupi og færa tímatökuflöguna á milli liðsmanna inni á skiptisvæði.
Einn keppandi má einnig klára alla þrautina.
Þátttökugjald fyrir hvert lið (2-6 þátttakendur) er 35.000 kr.
Fyrirtæki má kaupa fleiri en eitt lið inn í keppnina. Hvert lið tilnefnir fyrirliða við skráningu sem er ábyrgur fyrir samskiptum við mótstjórn. Það fyrirtæki sem hefur samanlagða 2 stystu keppnistímana vinnur Firmakeppni Íslands í þríþraut. Verðlaun fyrir sigur er farandbikar og eignarbikar.
Reglur fyrir Firmakeppni Íslands:
Skráningu lýkur á miðnætti fimmtudaginn 30. ágúst.
Smelltu hér til að skrá þig og þitt fyrirtæki
Allar nánari upplýsingar er að finna á facebook síðu Firmakeppni Íslands
https://www.facebook.com/firmakeppni/
Brautarlýsing: Hjóla og hlaupaleiðir
Brautarlýsing
Dagsetning / Date | 02-09-2018 10:00 |
Viðburði lýkur / End Time | 02-09-2018 13:00 |
Hámarksfjöldi | Ótakmarkað eða ekki tekið fram |
Verð / Price | 35.000 kr. |
Staðsetning | Sundlaug Kópavogs |