Kópavogsþríþrautin verður haldin þann 18. maí nk.
Að þessu sinni er þrautin Íslandsmót í Sprettþraut, keppt er eftir reglum þríþrautarnefndar, sjá: http://www.triathlon.is/?page_id=1211
Vegalengdir eru 400 m sund, 10,3 km hjól og 3,5 km hlaup.
Synt er í Sundlaug Kópavogs, skiptisvæði er á Rútstúni fyrir neðan sundlaugina.
Ræst verður í þremur riðlum.
3. riðillinn er sérstaklega tileinkaður byrjendum. Hver riðill getur verið allt að 60 manns sem munu synda í einu á öllum 10 brautum stóru laugarinnar, og hlaupa svo niður á skiptisvæðið á Rútstúni. Þá tekur hjólið við, þar sem hjólaðir eru 3 hringir út fyrir Kársnes og framhjá sundlauginni sem endar aftur á skiptisvæði á Rútstúni, þar sem skipt er yfir á hlaupaskó og hlaupnir 2 hringir inn Kópavogsbraut út fyrir Sunnuhlíð niður að Kópavoginum og til baka. Hér má sjá kort af leiðinni.
Dagskrá
8:10 Tæknifundur með yfirdómara á Rútstúni
8:40 1. riðill ræstur
9:06.2. riðill ræstur
9:32 3. riðill ræstur.
10:30 Verðlaunaafhending
Dagsetning / Date | 18-05-2014 08:40 |
Hámarksfjöldi | 150 |
Skráðir | 104 |
Skráning lokar / Registration ends | 17-05-2014 |
Verð / Price | 2.500 ISK |
Staðsetning | Sundlaug Kópavogs |