Menu

Einar formaður 50 ára

Einar formaður 50 ára Einar formaður 50 ára

Formaður Þríkó, Einar Stefán Kristinsson varð fimmtugur mánudaginn, 13. janúar. 

Af því tilefni komu vinir hans honum á óvart, þar sem hann var plataður til að mæta á sundæfingu, eldsnemma um morguninn, en þegar æfingin var langt komin, voru vinnufélagar hans og vinir mættir í laugina. 

Félagar hans boðuðu til boðsundkeppni í fjórum hlutum sem Rémi Spilliaert stýrði. 

Ýmislegt þurfti að gera, t.d. þurfti hluti sundmanna að synda flugsund, synda þurfti yfir og undir brautaskiptingar og að lokum þurftu liðin að synda með eldspýtustokk og kveikja loks á kerti - allt fyrir afmælisbarnið.

Að sjálfsögðu sigraði lið afmælisbarnsins ;-) 

Eftir sundmótið bauð Guðný öllum í morgunkaffi heim til þeirra hjóna. 

Við óskum Einari innilega til hamingju með áfangann.

Sjá fleiri myndir frá uppákomunni í lauginni hér.

back to top