Menu

Sundnámskeið fyrir áhugafólk um þríþraut

Þríþraut Kópavogs verður haldin laugardaginn 12. maí n.k.

Af því tilefni verða sundæfingar fyrir þá sem vilja bæta sundkunnáttu
sína fyrir keppnina á mánudags og miðvikudagsmorgnum kl. 6.00 í
Sundlaug Kópavogs.

Fyrsti tími er mánudaginn 19.marz og síðasti tíminn 10. maí 2012 alls
14 tímar.

Þjálfari er Arnar Felix Einarsson.

Farið verður í grunnþætti skriðsundstækni og einnig verða tækni og
hraðaæfingar fyrir þá sem vilja bæta skriðsundstæknina og hraðann.

Skráning fer fram hér

einnig má senda skráningar eða fá nánari upplýsingar hjá keppnisstjóra Þríþrautar Kópavogs

This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. eða í síma 8621162

Verð kr. 12.000.-

Sunddeild Breiðabliks

back to top