Menu

Æfingaferð til Tenerife - Dagur 8

Þá er síðasti dagurinn upp runninn, eins og allt sem er skemmtilegt þá tekur það enda og tíminn líður allt of fljótt.

Dagurinn var tekinn snemma og skokkað létt á ströndinni, enda einn hlýjasti og sólríkasti dagur ferðarinnar.

Skokkað var frá 5-10 km og fóru sumir eftir skokkið beint í sjóinn, nú án galla og syntu um 500 m. áður en skokkað var heim.

Eftir að búið var að pakka hjólum þá var smá tími til að sleikja sólina áður en rútan kom og sótti hópinn.

Lentum aftur í því að farangurinn komst ekki fyrir, svo senda þurfti sér rútu eftur okkur ;-) 

Flugið heim gekk mjög vel, millilentum á Kanaríeyjum á heimleið og vorum komin til Íslands fyrir klukkan 23.00.

Stjórn Þríkó þakkar samferðarmönnum í æfingaferðinni fyrir yndislega samveru og góða ferð. 

Fyrir áhugasama, þá eru fleiri myndir úr ferðinni, á Facebook síðu CLUB ACTIVO sjá hér: 

 

 

back to top