Menu

Æfingaferð til Tenerife - Dagur 7

Nú var förinni heitið til eyjunnar La Gomera, sem er ein af sjö eyjum Kanaríeyja og sú næstminnsta. 

La Gomera hefur verið á Heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) frá 1986. 

Ferðin hófst með þvi að við hjóluðum að höfninni í Los Cristianos, þaðan sem siglt var til La Gomera.

Eftir komuna til eyjunnar hófst strax mikið klifur í rúmlega 600 metra hæð um 13 km leið. 

Við tóku nokkur göng og síðan var rúll niður. Útsýnið þarna er stórkostlegt.

Eftir mikla lækkun hófst annað klifur sem endaði aftur í um 600 metra hæð þar sem snæddur var hádegismatur að hætti eyjmanna, virkilega góður. 

Eftir mat, hélt klifrið áfram,  rúmlega 12 km, þar sem við náðum um 1400 m toppi. 

Síðan var smá upp og niður kafli áður en haldið var niður, í mjög miklu roki, vindhviður örugglega um 30 m.sek. 

Margir voru á því að ferðin niður hafi ekki verið auðveldari en ferðin upp ;-) 

Annars gekk mjög vel hjá öllum, hvellsprakk hjá einum þegar um 5 km voru eftir.

Síðan var ferjusiglingin til baka bara góð. 

Tveir úr græna hópnum hjóluðu á eigin vegum á Tenerife og hjóluðu upp í La Vilaflor sem var ansi mikil hækkun og náðu þeir um 85  km hjólatúr í dag.

Yndislegur hjóladagur að kveldi kominn, síðasta kvöld hópsins á Tenerife.

back to top