Menu

Æfingaferð til Tenerife - Dagur 6

Næstsíðasti heili dagurinn okkar á eyjunni Tenerife rann upp bjartur og fagur.

Rauði hópurinn var sóttur klukkan 8:15 enda beið þeirra um klukkustunda akstur á norðurhluta eyjunnar.

Framundan var hjólaferð upp á stærsta fjall Spánar, Teide, og niður hinum megin og heim á hótel.

Ferðin gekk mjög vel, 80 km samtals um 1.560 m hækkun.

Græni hópurinn hjólaði fyrst niður til Las Galletas og svo upp til fjalla til San Miguel og í austurátt, tveir hjólararanna náðu að fara yfir 100 km markið í fyrsta skipti. 

Einhverjir tóku brick æfingu eftir hjólið, frá 4-11 km og svo fóru margir í sjóinn fyrir kvöldmat. 

Góður dagur að kveldi kominn,

back to top