Menu

Æfingaferð til Tenerife - Dagur 5

Í dag var stóri dagurinn fyrir rauða hópinn.

Lagt var í hann frá hótelinu klukkan 08:15 eftir morgunmat og leiðinni heitið að Masca.

 

Græni hópurinn var sóttur á hótelið klukkan 09:15 og keyrður uppí bæinn Santiago de Teide, þar sem beðið var eftir rauða hópnum og svo fóru báðir hóparnir hring sem endaði við Masca, þá var eftir um 2 km leið sem var mjög brött og mikið klifur.

Græni hópurinn endaði þarna, hjólaði samtals 54 km og 1200 m. hækkun.

Rauði hópurinn hjólaði heim og endaði í 140 km -169 km (sumir lengdu aðeins) samtals 3.200 - 3.800 m hækkun.

Til að halda upp á glæsilegan dag var farið á steikhús um kvöldið. 

 

 

 

back to top