Menu

Æfingaferð til Tenerife - Dagur 4

Nú átti að taka það rólega, enda þrír langir hjóladagar framundan.

Við hófum daginn á léttu skokki, um 5-6 km, sem endaði í mjög sterku kaffi á kaffihúsi.

Eftir morgunmat var slakað á við sundlaugabakkann, en þvi miður ekki hægt að sleikja sólina, því það var svo skýjað. 

Eftir hádegi var farið í léttan ís-hjólatúr til Las Galletas um 26 km. 

Síðdegis var svo farið í sjósund, þar sem flestir æfðu sundið í galla, hins vegar var sjórinn frekar kaldur, þar sem það var sólarlaust allan daginn. 

Eftir kvöldmat var áð snemma eins og nær alltaf ;-) 

Yndislegur dagur að kveldi kominn. 

back to top