Menu

Æfingaferð til Tenerife - Dagur 3

Þá var komið að fyrsta skipulagða hjóladeginum með Club Activo.

Rútan sótt hópinn klukkan 09:00 og fór með okkur til Güímar um 70 km leið. 

Þar fór rauði hópurinn "til hægri" eins og fararstjórinn kallaði það en græni hópurinn "til vinstri". 

En rauði hópurinn átti í vændum WIGGINS CLIMB um 1800 m hækkun á 22 km, þ.e. fóru upp á fjall og niður áður en þeir komu að núllpunkti græna hópsins.

Græni hópurinn hjólaði 77-80 km - samtals 1.150 m hækkun.

Rauði hópurinn hjólaði 130 km - samtals 3000 m hækkun. 

Það voru ýmsar skemmtilegar uppákomur hjá báðum hópunum, sem verður sagt fra síðar.

Frábær dagur að kveldi kominn ;-)

back to top