Menu

Æfingaferð til Tenerife - Dagur 1

Það var 15 manna hópur sem lagði í hann til Tenerife frá Keflavík þennan kalda þriðjudagsmorgun.

Flugið gekk vel og við lentum í Tenerife klukkan 14:30, staðartími sá sami og á Íslandi.

Það gekk hins vegar frekar brösulega að koma öllum farangrinum fyrir í rútunni en það voru 14 hjólatöskur ásamt öðrum farangri, svo tveir úr hópnum fóru með hluta farangursins með leigubíl á hótelið. 

Æfing dagsins skv. plani frá hlaup og vegalengdin frá 10-14 km í yndilsegu veðri á Tenerife.

Hópurinn borðaði svo saman kvöldmat á hótelinu, enda í hálfu fæði ;-)  

Eftir stuttan fund fór kvöldið að mestu í að græja hjólin fyrir rmorgundaginn. 

Yndislegur dagur á Tenerife í frábærum félagsskap.

back to top