Menu

Fjórða þrautin

Þríkó skvísur hittust og lögðu stund á fjórðu þrautina síðastliðinn föstudag. 

Hópurinn hittist á Grand Spa á Grand Hótel Reykjavík þar sem nuddari var heimsóttur. 

Eftir nudd og slökun var farið í pottinn þar sem hópurinn fékk óvænta heimsótt og þeim boðið upp á jarðarberja-freyðivín og peru-cider.

Síðan var haldið á Fjalaköttinn í Austurstræti þar sem við fengum sérstakan sal og gæddum okkur á gómsætum Tapas réttum. 

Þar deildum við markmiðum ársins 2014 og miðluðum reynslu okkar síðustu ára. 

Við í undirbúningsnefnd þökkum Þríkó skvísum fyrir yndislega kvöldstund og þökkum stjórninni fyrir drykkina í pottinn. 

Hlökkum til sumarsins. 

Nú er spurningin: Hver er fjórða þrautin? 

Sjá fleiri myndir hér:

 

back to top