Kópavogsþríþrautin verður haldin þann 15. maí nk.
Vegalengdir eru 400 m sund, 10,3 km hjól og 3,5 km hlaup.
Keppt er eftir reglum þríþrautarnefndar, sjá: http://www.triathlon.is/?page_id=1211
Synt er í Sundlaug Kópavogs, skiptisvæði er á Rútstúni fyrir neðan sundlaugina.
Ræst verður í tveimur riðlum.
Hvor riðill getur verið allt að 60 manns sem munu synda í einu á öllum 10 brautum stóru laugarinnar, og hlaupa svo niður á skiptisvæðið á Rútstúni. Þá tekur hjólið við, þar sem hjólaðir eru 3 hringir út fyrir Kársnes og framhjá sundlauginni sem endar aftur á skiptisvæði á Rútstúni, þar sem skipt er yfir á hlaupaskó og hlaupnir 2 hringir inn Kópavogsbraut út fyrir Sunnuhlíð niður að Kópavoginum og til baka. Hér má sjá kort af leiðinni.
Dagskrá
8:00 Tæknifundur með yfirdómara á Rútstúni
kl. 8.30 Fyrri riðill
kl 9.00 Seinni riðill
kl. 11.00 Fjölskylduþraut
kl. 12.15 Verðlaunaafhending
Flokkar, karla og kvennaflokkar 16-39 ára, 40-49 ára og 50+
Dagsetning / Date | 15-05-2016 08:30 |
Viðburði lýkur / End Time | 15-05-2016 12:30 |
Hámarksfjöldi | 120 |
Skráðir | 78 |
Skráning lokar / Registration ends | 11-05-2016 |
Verð / Price | 3.000 kr. |
Staðsetning | Sundlaug Kópavogs |