Logo
Print this page

IRONMAN 2015 ALL WORLD ATHLETE

IRONMAN 2015 ALL WORLD ATHLETE

Viðar Bragi Þorsteinsson, hjólaþjálfari Þríkó og félagi er komin í IRONMAN 2015 ALL WORLD ATHLETE klúbbinn eða svokallaðan alheims Gullhóp Ironman 2015.

Í þessum hópi eru aðeins 1% bestu þátttakendur í hverjum aldurshópi þegar búið er að taka saman allar Ironman keppnir ársins 2014. 

Þeir sem komast í þennan hóp njóta ýmissa fríðinda eins og forgang í skráningu í Ironman keppnir, merki gullhópsins er á keppnisnúmerum og sundhettum þessara aðila og upplýsingar um þá ákeppnisskrám Ironman móta.  Gullfélögum er einnig boðið í sérstök VIP boð í kringum Ironman mót og sérstakur morgunverðarfundur er haldinn með þeim.  

Við óskum Viðari Braga innilega til hamingju með þessa viðurkenningu og bíðum spennt eftir að sjá hvort og þá í hvaða Ironman keppni hann skráir sig 2015. 

 

 

© Þríkó / Þríþrautardeild Breiðabliks.